The K Desktop Environment  
 
Íslenskir þýðendur KDE
 

Bjarni Rúnar Einarsson

Enn er mjög lítið vitað um Bjarna nema það að hann er með sítt hár og klæðist oft leðurbuxum.  Hann lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðibraut MH og stundar nú stærðfræðinám við Háskóla Íslands.  Honum leiðist aldrei eins og sjá má á afrekalista hans.  Hann er kerfisstjóri hjá netþjónustu Margmiðlunar, sér um ráðgjöf og uppsetningar á þeirra vegum, er virkur meðlimur í Félagi Íslenskra Netverja, BOFH samtökunum, karatefélaginu Þórshamri o.fl.  Hann stefnir á doktorsnám í tölvuöryggisfræðum og er brennslumeistari hópsins.  Bjarni er alltaf ástfanginn! 

breEkkertRusl@nospam-netverjar.is


 

Hrafnkell Eiríksson

Hann er sá eini í hópnum sem hefur fengið að færa landanum fagnaðarerindi KDE og Linux í útvarpinu (Rás 2, 23. jan.).  Hann varð reyndar fyrst frægur þegar hann skellti 'is' skránni á netið (með leiðbeiningum) og gaf þannig öllum tök á að nota íslenska stafi í Linux.  Fyrir utan tíðar heimsóknir á listann þá vinnur hann líka á bak við tjöldin við að setja saman gagnagrunn orðabókar hópsins. 

hkelleEkkertRusl@nospam-rhi.hi.is 


 

Logi Ragnarsson

KLogi, eins og hann er stundum kallaður, er fæddur 1975 í Reykjavík.  Afkomandi fræðimanna í báðar ættir, Reykvíkingur í aðra en Siglfirðingur í hina.  Hann lauk stúdentsprófi frá MH og stundar nú nám í dulmálsfræði við Aarhus Universitet.  Hann er búinn að komast með puttana í flestar þýðingar KDE.

Hann stefnir á vel borgað starf þar sem fræðimennskan fær að njóta sín.  Hann er einhleypur sem stendur.  Áhugasamar sendi fyrirspurn í tölvupósti. 

logirEkkertRusl@nospam-imf.au.dk


 

Þórarinn Rúnar Einarsson

Tóti er fæddur 1968 í Ólafsfirði og er afkomandi ræðumanna, rithöfunda og íslenskusnillinga.  Hann álítur sig því sjálfkrafa verndara íslenskunnar.  Hann er Grímseyjingur í aðra ætt en Vestmanneyjingur í hina.  Hann lauk stúdentsprófi úr Verkmenntaskólanum á Akureyri 1989 og BS prófi í kerfisverkfræði frá Wright State University 1994 með mannvæna hönnun sem sérfag.

Eftir stutta dvöl við kennaraháskólann í Peking elti hann kærustuna til Columbus, Ohio.  Hann býr núna í Norður Karólínu þar sem hann vinnur sem ráðgjafi hjá AT&T símafyrirtækinu við hönnun á hugbúnaði fyrir starfsmannahald. 

thoriEkkertRusl@nospam-mindspring.com


 

Ólafur Jens Sigurðsson

Fæddur 1974 á Sauðárkróki, sem sagt Sauðkræklingur.  Afkomandi presta (Jóns Arasonar ábyggilega) og konunga (Haralds hárfagra) en nýlegir forfeður eru blikksmiðir, píparar og almennt verkafólk.  Ættaður frá Akureyri, Skagafirði og Snæfellsnesi.  Lauk stúdentsprófi frá MH (með herkjum, schöne deutsche var alltaf að fella hann) en ákvað eftir það að slappa vel af og fór í eðlisfræði í Háskóla Íslands.  Stefnir á að útvega sér góða gráðu í eðlisfræði (öreindafræði, stjarneðlisfræði, eða álíka skemmtilegu) og vinna fyrir sér sem fræðimaður.   
Mikill áhugamaður um tölvur og varðveislu íslenskrar tungu á tölvum.  Eins og stendur eru einkamálin í ólestri og hann dúsir einn og yfirgefinn í kytru í vesturbænum. 
 
ojsEkkertRusl@nospam-rhi.hi.is

  Bergur Arnarsson 

Fæddur  1976 í Hafnarfirði.  Afkomandi Arnar Bergssonar Bjarnasonar Jónssonar og Svölu Jónsdóttur Stórbónda (hann Jón).  Hafnfirðingur  í aðra ætt en sunnlendingur í hina.  Lauk stúdentsprófi af eðlisfræði- og náttúrufræðibrautum frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og stundar nú nám í rafmagnsverkfræði við HÍ og stefnir á starf sem  
sterkstraumsverkfræðingur.  
Hann á eiginkonu og eitt barn. 

berguraEkkertRusl@nospam-hi.is


  Guðmundur Erlingsson 

Fæddur 1968 á Akranesi en sleit barnskóm og Nokia stígvélum í sveitasælunni í Dalasýslu.  Af Húsafellsætt og Arnardalsætt, afkomandi Snorra á Húsafelli og nokkurra kynslóða Ögurbænda. Lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Lauk BA-prófi í íslensku frá HÍ árið 1995 en hefur verið að kvelja tölvunarfræðinga við sama skóla í vetur og situr kúrsa í þeirri skor. Starfar sem stendur fyrir Verkefnisstjórn á vegum Lýðveldissjóðs og sem málfarsráðgjafi á fréttastofu Ríkissjónvarpsins og er þar með óvígður íslenskufræðingur hópsins.  

Er í sambúð og á rúmlega tveggja ára gamlan son, Kolbein Sturlu, sem tekur öðrum börnum fram í hvívetna.  Kötturinn Garpur lætur af og til sjá sig á heimilinu en hefur ekki sýnt KDE verkefninu mikinn áhuga hingað til. 

gudmunerEkkertRusl@nospam-lexis.hi.is




  Eins og stendur eru 42 á póstlista verkefnisins.  Margir hafa bæst í hópinn í kjölfar frétta um KDE og Linux í fjölmiðlum nýlega.  Þessir meðlimir hér að ofan, eru því aðeins lítill hluti þeirra sem hafa unnið að þýðingunni.

 
 

Síðast uppfært 27. janúar 1999