|
|
|
K skjáborðið, eða KDE (K Desktop Environment) er öflugt skjáborð fyrir Unix vélar. Það sameinar auðvelda notkun, nútíma möguleika og einstaka myndræna hönnun, við frábæra eiginleika Unix stýrikerfisins. KDE er nýtt skjáborð og inniheldur mörg almenn notendaforrit fyrir Unix vélar. Þó KDE innihaldi gluggastjóra, skráastjóra, almennt stjórnborð og mörg önnur forrit sem ætlast má til að séu innbyggð í nútíma skjáborðsumhverfi, þá liggur aðal styrkur KDE í því hvernig þessi forrit öll vinna saman. Nú er hægt að sækja uppfærslur á þýðingum sem Bjarni hefur sett saman. Við höfum okkar eigin síðu fyrir íslenskar fréttir tengdar hópnum en KDE er með alþjóða fréttasíðu á ensku. Íslenska þýðingin Íslenska þýðingin
á KDE er að að mestu búin en prófarkalestur
stendur yfir. Því fleiri sem skoða þýðingarnar
því tryggari verða þær þannig að
við myndum vel þyggja aðstoð. Okkur vantar góða
íslenskumenn (eða konur) með líflegann orðaforða
í tölvugeiranum og góða tilfinningu fyrir íslensku
máli.
Ef þú vilt taka þátt, hafðu þá samband við Þórarin (thori@mindspring.com) eða skráðu þig á KDE-ISL umræðulistann (sendu skeytið með 'subscribe kde-isl' í meginhluta bréfsins). |