![]() |
| Linux fyrst
Ef þú ert ekki með Linux þá þarftu það fyrst. Best er að kaupa eintak á geisladisk en einnig er hægt að sækja hvaða dreifingu sem er af Linux yfir Netið. Ein slík er t.d. fáanleg á ftp miðlara Margmiðlunar. (Ath. Höfundarrétturinn leyfir slíkt). Hugsanlega getur einhver líka brennt fyrir þig geisladisk með dreifingunni á og aðstoðað þig við uppsetningu. Þú gætir prófað að spyrjast fyrir á póstlista KDEverkefnisins. Það vill svo skemmtilega til að Bjarni R. Einarssonselur geisladiska með Linux og KDE, útgáfu 1.1 fyrir 500 kr. stykkið. Síðan getur þú sótt nýjar útgáfur af skráarþjóni KDE þegar þú þarft orðið að uppfæra til að fá nýjustu forritin. Sjálf innsetningin á Linux fer eftir þeim aðstæðum sem þú hefur. Við skulum gera ráð fyrir að þú hafir fengið Linux á geisladisk og ætlir að:
Richard Allen hefur hinsvegar verið að kenna innsetningu á
Linux hjá Opnum Kerfum. Hann er að setja saman íslenskt
námskeið um innsetningu á Redhat Linux (með nokkra
síðna inngangi). Ef það dugar ekki, þá
er á netinu ágætis Linux
námskeið á ensku.
Og svo KDE (á Red Hat Linux 5.2) Þegar Linux er komið inn og X rekillinn er í lagi (startx skipunin birtir gluggaumhverfi), þá er röðin komin að því að setja inn KDE. Vonandi hefur þú fengið í eintök af þeim skrám sem þarf en annars getur þú sótt þær af skráarþjóni Margmiðlunareða skráarþjóni KDE. Grunnpakkinn (án KOffice) er rétt rúm 20 MB (afþjappast í rúm 40 MB). Fyrst þarftu að setja inn eftirfarandi skrár (í þessari röð):
Ef um er að ræða RPM skrá:
Ef um er að ræða GZIP þjappaða TAR skrá
(Tjörubolta):
Ef skráin endar ekki á '.gz' þá sleppir þú
bara zetunni í 'xvfz'. Þetta endurtekur þú
síðan fyrir alla pakkana sem þú vilt fá.
Það skiptir ekki máli í hvaða röð
hinir eru settir inn.
Hafa KDE sem sjálfgefið gluggaumhverfi Ef þú vilt að KDE (en ekki hvað?) birtist þegar þú gefur startx skipunina, þá þarftu að stimpla inn: $ /opt/kde/bin/usekde root þar sem root
er notandanafn þess notanda sem vill hafa KDE sjálfgefið
(t.d. root sjálf(ur)).
Keyra beint inn í KDE þegar kveikt er á tölvunni Sumir vilja keyra beint inn í myndrænt umhverfi þegar þeir ræsa Linux (ekkert skipanalínuvesen) og það er gert svona: $ /opt/kde/bin/kdm_on
(kdm_off
afturkallar þetta)
Og að lokum Stimplaðu þig núna út $ logout Síðan aftur inn og keyrðu KDE með $ startx Og þá sérðu vonandi K Skjáborðið
!
Íslensk forrit - Íslenskir stafir Íslenskuð KDE forrit færðu fram með því
að fara í
Nú vantar þig bara íslensku stafina. Ekkert mál! Hrafnkell hefur allar upplýsingar sem þú þarft til að setja íslensku stafina inn. En hér er stutt lýsing. Þú bætir einfaldlega is
skránni við í
XkbLayout
"is"
Hjálpin er ekki fjarri Ef eitthvað kemur upp á hjá þér og þér tekst ekki að setja inn KDE þá eru ýmsar leiðir til að fá aðstoð. KDE verkefnið er með nokkra póstlista fyrir notendur um allan heim og sá hjálplegasti fyrir byrjendur er án efa:
Eldri umræður má finna safnvistaðar á KDE síðunni. Íslenskir KDE notendur:Þú getur haft samband við marga íslenska KDE notendur með því að senda stutt skeyti á KDE-ISL listann og biðja um aðstoð.
|