![]() |
| Athugið: Ef þú vilt gjörbreyta
útliti KDE þá eru margar athyglisverðar skjámyndir
og tilheyrandi upplýsingar á
stefsíðu
KDE (KDE Themes.org)
|
|
| KDE Skjámyndir
Þessi mynd hér að ofan sýnir valmyndina úr K takkanum, sem hægt er að raða eins og maður vill með kmenuedit forritinu. Skráarstjórinn, póstforritið, Tetris og geislaspilarinn eru opin. Einnig sést aðeins í GIMP myndvinnsluforritið, en það var notað til að grípa skjámyndina með 10 sekúndna töf.
Ok, þessi er ekki íslensk en sýnir Macintosh notendum að KDE hefur uppá ýmislegt að bjóða fyrir þá. Valmyndirnar efst breytast eftir því hvaða forrit er virkt (hefur fókus) og gluggarammarnir líkjast MacOS umhverfinu frekar en venjulega KDE umhverfinu. Hafið í huga að þar sem KDE keyrir á LinuxPPC útgáfunni af Linux, þá gæti þessi skjámynd hafa komið af PowerPC vél (sem keyrir 20-30% hraðar með Linux sem stýrikerfi). Fleiri skjámyndir verða settar hér síðar. Þú gætir einnig skoðað skjámyndirnar á aðalsíðu KDE verkefnisins. |
|