The K Desktop Environment

 


Íslenskir fulltrúar (og þýðendur)

Opinberir fulltrúar KDE á Íslandi eru:
 

Bjarni R. Einarsson bre-EkkertRusl@netverjar.is
Hrafnkell Eiríksson hkelle-EkkertRusl@rhi.hi.is
Guðmundur Erlingsson gudmuner-EkkertRusl@lexis.hi.is

Á hópsíðunni er stutt kynning á þeim ásamt öðrum meðlimum hópsins. 

Póstlistar KDE

KDE hefur upp á nokkra póstlista (umræðulista) að bjóða.  Þessa lista má sjá hér að neðan með lítilsháttar upplýsingum um hvern.  Eldri umræður eru allar safnvistaðar

Athugið:  Allar umræður fara fram á ensku.

  • kde - almennar umræður. 
  • kde-announce - tilkynningar um ný KDE forrit. 
  • kde-user - notendur hjálpast að. 
  • kde-devel - fyrir forritara. Áskrift gefur þér lestrarheimild.  Til að fá skrifheimild þarftu að hafa samband við Martin Konold  umsjónarmann.  Vinsamlega láttu hann vita hvað þú hyggst hjálpa til við. 
  • kde-licensing - umræður um höfundarétt og ýmis lagamál. 
  • kde-look - umræður um útlit og virkni ("look'n'feel"). 
Til að gerast áskrifandi: Smelltu á þann lista sem þig langar að gerast áskrifandi að og stimplaðu subscribe þittnetfang í umfangsefnisdálkinn.  Að sjálfsögðu setur þú þitt eigið netfang í stað "þittnetfang". Ekki skrifa neitt í meginefni bréfsins og ekki láta undirskrift með eða neitt slíkt því það gæti ruglað póstþjóninn sem tekur við beiðninni. 

Til hætta sem áskrifandi: Smelltu á þann lista sem þú vilt hætta að vera áskrifandi að og stimplaðu unsubscribe þittnetfangí umfangsefnisdálkinn.  Að sjálfsögðu setur þú þitt eigið netfang í stað "þittnetfang". Ekki skrifa neitt í meginefni bréfsins og ekki láta undirskrift með eða neitt slíkt því það gæti ruglað póstþjóninn sem tekur við beiðninni. 

Athugið
Vinsamlega ekki nota HTML til að senda beiðnina því það gerir póstþjónum erfitt fyrir.  Ef þú ert að senda beiðni frá því netfangi sem þú vilt skrá á viðkomandi póstlista þá getur þú sleppt netfanginu. 

Ef þú þarft að hafa samband við einhvern forritara KDE þá má yfirleitt finna upplýsingar netföng forritara í hjálparskrám með forritum.
 

Opinberir fulltrúar KDE verkefnisins:

Skoðaðu vefsíðuna Opinberir fulltrúar ef þú þarft að nálgast KDE hópinn á formlegan hátt. 

 


Síðast uppfært 28. janúar 1999.
Umsjón: thori-EkkertRusl@mindspring.com